„Það er talað um að tölvuleikir höfði til barna því þar verði svo skjót endurgjöf, en matreiðslan er eins með sín skýru verkefni, mælanlega árangur og endurgjöf strax," segir Guðmundur yfir áhugasömum matreiðslusnillingum í Laugarnesskóla.
„Öll börn hafa yndi af eldamennsku. Þau verða kannski ekki öll Michelin-kokkar en hvert og eitt getur orðið fært um að búa til mat sem það nýtur að borða og hjálpar til við hreysti og heilbrigði. Þá hugsun þurfa foreldrar að innleiða hjá börnum sínum og kynna þeim verkefnið sem mikilvægt og nauðsynlegt, með þekkingu og færni sem auðvelt er að tileinka sér," segir Guðmundur og leggur áherslu á að eldhús megi aldrei verða börnum framandi heimur því þannig búi foreldrar til fólk sem lifi á skyndibita.
Með matreiðslubókinni Eldum saman vildi Guðmundur skapa hjálpartæki fyrir fjölskyldur að gera eitthvað saman í eldhúsinu.
„Matmálstímar sameina fólk og skapa dýrmætar minningar. Með því að virkja börn í eldamennskunni verður afraksturinn þeirra og meira gaman að borða."
Guðmundur segir réttan tíma fyrir börn að hefja eldhússtörf þegar þau sýni þeim áhuga.
„Það gerist oft um tveggja, þriggja ára aldur. Þá er verkefni foreldra að finna barninu hentug og raunveruleg viðfangsefni, en alls ekki of einföld aulaverkefni sem svo er ekki ætlað að borða."
Guðmundur hefur komist að því hvað öllum krökkum þykir gott.
„Allir krakkar eru hrifnir af pitsu, enda auðvelt að laga hana að smekk hvers og eins. Þá er grjónagrautur í uppáhaldi, sem og bakstur, sem þeim þykir skemmtilegur viðfangs og gaman að uppskera með góðri köku."
Í Eldum saman fer Guðmundur yfir mannasiði við matarborðið, hreinlæti og annað til stuðnings uppeldi barna í eldhúsinu.
thordis@frettabladid.is
Kókoskökur Guðmundar heimilisfræðikennara

Áhöld: Skál, sleif, desilítramál, mæliskeiðar og bökunarplata með bökunarpappír
3½ dl hveiti
2 dl sykur
3-4 dl kókosmjöl
½ tsk. hjartarsalt
150 g mjúkt smjör
1 dl rúsínur
1 egg
Setjið allt í skál og hrærið vel saman. Ef deigið er mjög blautt má bæta í það smá hveiti en ef það er of þurrt þá örlitlu vatni. Mótið litlar kúlur í höndunum og setjið á plötuna.
Reynið að hafa gott bil á milli þeirra. Bakið við 180 °C í 10–12 mínútur eða þar til kökurnar hafa stífnað aðeins og eru orðnar fallega gullinbrúnar.