Innlent

Undir tvítugu í vopnuðu ráni

Tveir karlmenn, báðir innan við tvítugt, hafa verið ákærðir af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir rán.

Mönnunum er gefið að sök að hafa ruðst inn á heimili manns með andlit sín hulin og vopnaðir hnífi í því skyni að ná frá honum verðmætum. Annar ránsmannanna stóð yfir fórnarlambinu og ógnaði honum með hnífnum á meðan hinn safnaði saman verðmætum.

Þeir hótuðu honum síðan lífláti ef hann segði frá því sem gerst hafði.

Mennirnir tveir höfðu á brott með sér tvær leikjatölvur, tölvuleiki, DVD-myndir og 5.000 krónur í reiðufé.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×