Innlent

Vill draga úr niðurskurði um 4 milljarða

ÖGMUNDUR JÓNASSON
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar gera ráð fyrir að skorið verði minna niður, sem nemur 4,1 milljarði króna, miðað við fjárlög 2011. Tekjuáætlun frumvarpsins hefur verið lækkuð um 35 milljónir króna.

Meirihlutinn leggur til að lánveitingar til hlutafélaga um vegaframkvæmdir verði lækkaðar um 1,6 milljarða króna, í ljósi nýrrar áætlunar um lánsþörf. Þá verði heimild til ríkisábyrgðar á lántökum Landsvirkjunar hækkuð um 10 milljarða. Lánin sem um ræðir verða til að mæta auknum fjárfestingum og auðvelda endurfjármögnun eldri skulda félagsins, gefist hagstæð tækifæri til þess.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar, kynnti breytingatillögurnar. Meðal einstakra breytinga sem hún tíndi til má nefna eflingu eigin fjár orkusjóðs um 100 milljónir og Byggðastofnunar um allt að 2 milljarða. Þá lækkar sparnaðarkrafa á Landspítalann um 140 milljónir.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir vinnu þingsins hafa snúist um að laga fjármálafrumvarpið frá því sem fyrst kom fram. Frumvarpið hafi batnað hvað varðar velferðarþáttinn.

„Barátta og þrýstingur þeirra sem vilja standa vörð um velferðarþjónustuna hefur skilað sér inn í frumvarpið, á því liggur enginn vafi. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að það aðhald og niðurskurður sem hefur átt sér stað undanfarin ár segi til sín. Við erum hins vegar að vona að það fari að sjá til sólar að nýju."

Umræður stóðu um fjárlögin fram á nótt í gær. Stjórnarandstæðingar gagnrýndu ýmislegt í frumvarpinu og tíndu meðal annars til aukin útgjöld til aðstoðarmanna ráðherra og það að bæta útgjöldum við listamannalaun á meðan verið væri að loka deildum heilbrigðisstofnana.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×