Innlent

Með burðargetu á við fimmtíu sæstrengi

ráðherrar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, rússneskur starfsbróðir hans, ræddu meðal annars lagningu sæstrengs milli Íslands og Rússlands.
ráðherrar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, rússneskur starfsbróðir hans, ræddu meðal annars lagningu sæstrengs milli Íslands og Rússlands.
Nýr hátæknisæstrengur milli Íslands og Rússlands gæti orðið að veruleika á næstunni. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti yfir áhuga sínum á lagningunni á blaðamannafundi með Össuri Skarphéðinssyni í Moskvu í gær.

Össur segir það markmið stjórnvalda að gera Ísland að miðstöð fjarskipta og gagnaflutninga á norðurslóðum. Strengurinn hefði burðargetu sem samsvaraði heildargetu allra hinna fimmtíu strengjanna sem nú þegar liggi milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Össur hefur á síðustu mánuðum verið í samskiptum við Rússa um lagningu strengsins. Fyrirtækið Polarnet í Rússlandi, sem vinnur nú að lagningu strengs frá Arkangelsk við Hvítahaf austur til Asíu, mun leggja strenginn áfram til Íslands í samvinnu við íslenska fyrirtækið Norline, ef samningar nást.

Kostnaður við strenginn verður um 150 milljónir Bandaríkjaríkjadala og er áætlað að hefja undirbúning um mitt næsta ár. Aðrir aðilar vinna nú að lagningu sæstrengs milli Íslands og Bandaríkjanna, sem á að komast í gagnið næsta ár.

Össur segir hugmyndina hafa sprottið upp í umræðum um að auka mikilvægi Íslands á norðurslóðum. Hún lofi góðu og geti örvað mjög viðskipti við Ísland varðandi gagnaver og gagnaflutninga.

„Ísland hefur allt sem til þarf, bæði samkeppnishæfa orku og fyrsta flokks tengingar, bæði til Evrópu um strengina til Danmerkur og Skotlands. Síðan er komin tenging til Grænlands sem liggur áfram til Kanada. Þegar fjarskiptastrengurinn til Bandaríkjanna er kominn í gagnið er varla hægt að hugsa sér betri kost fyrir Rússa en að tengjast Íslandi,“ segir Össur. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×