Innlent

Tvö fá verðlaun Velferðarsjóðs

Verðlaunuð Hrefna Haraldsdóttir og Stefán Hreiðarsson fengu verðlaun Velferðarsjóðs barna.
Verðlaunuð Hrefna Haraldsdóttir og Stefán Hreiðarsson fengu verðlaun Velferðarsjóðs barna.
Hrefna Haraldsdóttar foreldraráðgjafi og Stefán Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, hlutu í gær barnamenningarverðlaun Velferðarsjóoðs barna. Verðlaunin, samtals tvær milljónir króna, fengu þau fyrir framúrskarandi framlag í þágu velferðar barna.

Samtals veitti Velferðarsjóður barna styrki að upphæð sex milljónir króna í ár. Á þeim tíu árum sem sjóðurinn hefur starfað hefur hann úthlutað um 600 milljónum króna. Stofnfjármagn Velferðarsjóðsins, rúmur hálfur milljarður króna, kom frá Íslenskri erfðagreiningu. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×