Innlent

Vísar máli aftur til rannsóknar

Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun sérstaks saksóknara um að hætta rannsókn á fimm lífeyrissjóðum sem voru í umsjá Landsbankans. Sérstökum saksóknara hefur verið gert að taka málið til áframhaldandi rannsóknar.

Fjármálaeftirlitið kærði lífeyrissjóðina til saksóknara fyrir brot á fjárfestingaheimildum. Saksóknari ákvað að hætta rannsókninni en þá ákvörðun kærði Fjármálaeftirlitið til Ríkissaksóknara, sem féllst á kæruna. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×