Erlent

Forsetinn varar við sundrungu

Kosningastemning Vladimír Pútín og Dimitrí Medvedev blasa við á veggspjaldi.nordicphotos/AFP
Kosningastemning Vladimír Pútín og Dimitrí Medvedev blasa við á veggspjaldi.nordicphotos/AFP
Vinsældir Sameinaðs Rússlands, stjórnmálaflokks þeirra Vladimírs Pútín forsætisráðherra og Dmitrí Medvedev forseta, hafa dalað nokkuð í Rússlandi vegna spillingarímyndar þótt enn sé honum spáð góðum sigri í þingkosningum sem haldnar verða á morgun.

Óvenjumargar kvartanir hafa borist vegna misbrests á framkvæmd kosninganna.

Medvedev forseti ávarpaði landsmenn í sjónvarpsávarpi í gær og varaði við sundruðu þingi. Fjölmargir smáflokkar myndu eiga erfitt með að koma góðum málum í framkvæmd.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×