Innlent

Segir skatt vegna skuldamála styrkja lífeyrissjóði

steingrímur j. sigfússon
steingrímur j. sigfússon
helgi hjörvar
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir lífeyrissjóðina njóta góðs af skattlagningu á sjóðina. Hún sé hluti af aðgerðum til styrktar skuldugum heimilum og sjóðirnir muni njóta góðs af betri stöðu heimilanna.

„Það er fráleitt að tala um þetta sem tapað fé lífeyrissjóðanna. Þeir njóta góðs af samlegðaráhrifum, það dregur úr afskriftum og þetta bætir eignasafn sjóðanna. Þá styrkir þetta greiðslugetu skuldunauta sjóðanna. Þetta er fráleitt skattlagning út í loftið og allra síst sett á vegna halla ríkissjóðs.“

Steingrímur segir skattinn hluta af samkomulagi stjórnvalda, banka og lífeyrissjóða til að koma til móts við skuldug heimili. Fjármunir nýtist til vaxtaniðurgreiðslu. Um tímabundna aðgerð til tveggja ára sé að ræða. Ríkissjóður leggi 2,5 milljarða í verkefnið, bankarnir 2,1 og lífeyrissjóðir 1,4 milljarða hvort árið.

„Það gera sér allir grein fyrir mikilvægi lífeyrissjóða og það eru engin áform um þetta sem framtíðarskatta. Þetta er algjörlega bundið við þessa aðgerð.“

Steingrímur dregur mjög í efa að þetta hafi áhrif á lífeyrisréttindi og getu sjóðanna til útgreiðslu. Staða sjóðanna hefði síst orðið betri hefði ekkert samkomulag náðst um málið.

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að málið sé enn til umfjöllunar hjá nefndinni og verði tekið fyrir síðar í vikunni. Skatturinn á lífeyrissjóðina sé einskiptisaðgerð og hlutur lífeyrissjóðanna í 12 milljarða greiðslu til skuldugra heimila í landinu. Hann segir ekki áform uppi um að hrófla við skattinum.

„Við höfum ekki uppi áform um það en til athugunar er hvort þetta auki ójafnað á milli þeirra sem eru í opinbera kerfinu annars vegar og almenna kerfinu hins vegar.“ - kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×