Erlent

Fyrirtæki lokuð og skólar tómir

Kosningar í Sýrlandi Sveitarstjórnarkosningar eru sagðar marklausar.
nordicphotos/AFP
Kosningar í Sýrlandi Sveitarstjórnarkosningar eru sagðar marklausar. nordicphotos/AFP
Sýrlendingar sýndu andstöðu sína gegn stjórnvöldum víða um land í gær með því að loka fyrirtækjum og senda börn sín ekki í skóla.

Þessar aðgerðir voru gerðar sama dag og sveitarstjórnarkosningar voru haldnar í landinu, þótt mótmælendahreyfingin telji þær marklausar og krefjist sem fyrr afsagnar Bashars al-Assad forseta.

Átök halda áfram víða í landinu og brást stjórnarherinn við af sömu hörkunni og fyrr.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×