Lífið

Hávært borðhald

Angelina Jolie segir fjölskylduna borða saman kvöldmat öll kvöld. 
nordicphotos/getty
Angelina Jolie segir fjölskylduna borða saman kvöldmat öll kvöld. nordicphotos/getty
Angelina Jolie skilur ekki þann mikla áhuga sem fólk hefur á einkalífi hennar því sjálf segist hún lifa ósköp viðburðasnauðu lífi þar sem allt snúist um barnauppeldi.

Jolie segist leggja mikið upp úr því að fjölskyldan sameinist yfir kvöldmatnum hvert kvöld en viðurkennir að borðhaldið geti verið ansi líflegt á stundum. „Við borðum saman sem fjölskylda öll kvöld. Okkur Brad finnst það mikilvægt. En það getur orðið villt, í fimm mínútur sitja allir kyrrir og hljóðlátir og svo byrja lætin,“ sagði leikkonan sem á sex börn með sambýlismanni sínum, leikaranum Brad Pitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×