Tónlist

Nicki Minaj með lag ársins

best Nicki Minaj á besta lag ársins samkvæmt gagnrýnendum Billboard.
best Nicki Minaj á besta lag ársins samkvæmt gagnrýnendum Billboard.
Gagnrýnendur hjá bandaríska tónlistartímaritinu Billboard hafa valið bestu lög ársins 2011. Fáum kemur það vafalítið á óvart að breska söngkonan Adele er þar ofarlega á blaði.

Nú er runninn upp sá tími sem hinir og þessir árslistar eru teknir að birtast. Gagnrýnendur hjá bandaríska tónlistartímaritinu Billboard eru þar engir eftirbátar og hafa tekið saman bestu smáskífulögin sem komu út árið 2011.

Ef topp tíu listinn er skoðaður má sjá að popp- og hiphop-tónlist er þar afar áberandi. Helst er það bandaríska hljómsveitin Bon Iver sem sker sig úr með lagið Holocene af sinni annarri plötu.

Sveitin á einmitt líka eina af plötum ársins samkvæmt könnum Fréttablaðsins sem finna má hér á síðunni á undan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.