Viðskipti erlent

Vaxtaálag ítalskra skuldabréfa lækkar

Léttir Aðgerðir Mario Monti forsætisráðherra virðast hafa skilað árangri þar sem vaxtaálag ríkisskuldabréfa lækkaði í gær. NordicPhotos/AFP
Léttir Aðgerðir Mario Monti forsætisráðherra virðast hafa skilað árangri þar sem vaxtaálag ríkisskuldabréfa lækkaði í gær. NordicPhotos/AFP nordicphotos/AFP
Ítölsk ríkisskuldabréf seldust fyrir rúma tíu milljarða evra í gær, á talsvert hagstæðari vöxtum en þeim hefur boðist undanfarið. Er um að ræða góðar fréttir fyrir Ítalíu sem hefur verið á mörkum greiðslufalls síðustu mánuði vegna vaxandi skulda og hækkandi lántökukostnaðar.

Við þetta hefur ávöxtunarkrafa á tíu ára skuldabréf fallið niður fyrir sjö prósenta markið sem hefur verið viðmið um sjálfbærni ríkisfjármála.

Ástæða þessa er talin vera tvíþætt. Annars vegar er líklegt að evrópskir bankar, sem fengu 489 milljarða evra að láni frá Seðlabanka Evrópu, hafi nýtt hluta þeirra fjármuna til að kaupa ítölsk ríkisskuldabréf. Hins vegar er talið að aðhaldsaðgerðir og skattahækkanir sem Mario Monti forsætisráðherra kom í gegnum þingið á dögunum hafi vakið fjárfestum trú á að með því væri tekist á við skuldavanda landsins.

Ítalía, sem er þriðja stærsta hagkerfið innan evrusvæðisins, skuldar alls um 1.900 milljarða evra.

Í dag verður enn eitt skuldabréfaútboðið og mun þar koma í ljós hvort fjárfestar hafa sannarlega traust á Ítalíu. - þj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×