Innlent

Minni umferð um Víkurskarð

Víkurskarð Umferðin hefur dregist saman um 6,6 prósent þó að met hafi verið slegið í umferð í júlí. 
fréttablaðið/gva
Víkurskarð Umferðin hefur dregist saman um 6,6 prósent þó að met hafi verið slegið í umferð í júlí. fréttablaðið/gva
Meðalumferð um Víkurskarð verður líklega 1.173 bílar á sólarhring á þessu ári, samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar.

Umferðin hefur dregist saman um 6,6 prósent milli ára. Meira hefur dregið úr umferð um helgar en virka daga og dregur Vegagerðin þá ályktun að einkaumferð hafi dregist hlutfallslega meira saman en atvinnutengd umferð.

Aldrei hafa fleiri bílar farið um Víkurskarð en í júlí á þessu ári, þegar 89.208 bílar fóru þar um.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×