Innlent

Samráðshópur áfallahjálpar fundaði á Kirkjubæjarklaustri

Frá eldgosinu. Myndin er úr safni.
Frá eldgosinu. Myndin er úr safni. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Samráðshópur áfallahjálpar fundaði í gær á Kirkjubæjarklaustri ásamt samráðshópi áfallahjálpar í Samhæfingarstöðinni í Reykjavík samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum.

Farið var yfir stöðu mála og lagður grunnur að frekara samráði félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og prestsþjónustu innan umdæmisins. Hóparnir voru sammála um mikilvægi þess að eyða óvissu meðal íbúa á sem flestum sviðum og tryggja gott upplýsingaflæði.

Þjónustumiðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri var opnuð í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum til að aðstoða heimamenn fyrir austan við uppbyggingastarfið.

Meðal verkefna þjónustumiðstöðvarinnar er að skipuleggja hreinsunarstörf sjálfboðaliða í samstarfi við heimamenn og ýmis önnur aðstoð vegna eldgossins. Fjöldi sjálfboðaliða hefur lagt hönd á plóginn við hreinsunarstörf á svæðinu og er sú aðstoð ómetanleg. Í dag var 30 manna hópur sjálfboðaliða við störf á fótboltavellinum, við skólann og elliheimilið á Kirkjubæjarklaustri.

Nokkuð hefur borið á að vatnsból hafi stíflast vegna ösku og hafa nokkrar nýjar holur verið boraðar þar sem þetta vandamál hefur komið upp.

Haldnir hafa verið upplýsingafundir í héraði sem hafa verið vel sóttir. Í síðustu viku var haldinn fjölmennur upplýsingafundur á vegum Búnaðarsambands Suðurlands með aðkomu Bændasamtakanna, Landgræðslunnar, Matvælastofnunar og Landbúnaðarháskólans. Þar var farið yfir efnainnihald og áhrif gosösku á gróður, heyöflun, endurræktun, áburðargjöf, heymiðlun, afrétti og beitarlönd. Á þeim fundi kom fram að Bjargráðasjóður mun starfa eftir sömu reglum og eftir eldgosið í Eyjafjallajökli.

Þjónustumiðstöðin er opin daglega og er viðvera frá kl.10:00 til 13:00 en utan viðverutíma eru starfsmenn á ferð um svæðið, hitta íbúa og skipuleggja aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×