Innlent

Megn bensínlykt í Eyjum

Slökkviliðið kom á vettvang vegna ótta við eldhættu.
Slökkviliðið kom á vettvang vegna ótta við eldhættu.
Megn bensínlykt gaus óvænt upp úr ræsum við Vestmannabraut í Vetmannaeyjum í gærkvöldi og kallaði lögregla slökkvilið á vettvang af ótta við eldhættu. Lyktina lagði inn í íbúðarhús víða við götuna.

Bensínstöð er við Faxastíg í grenndinni og voru starfsmenn hennar ræstir út til að yfirfara allan búnað, en þar reyndist allt í lagi og ekki tókst að rekja uppruna lyktarinnar. Svipað atvik kom upp fyrir nokkrum árum, en þá var lyktin ekki eins megn og í gærkvöldi. Það mál er enn óupplýst.

Slökkvilið dældi vatni ofan í ræsin til að skola þau út og dró þá smám saman og lyktinni. Málið verður kannað nánar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×