Innlent

Launadeila starfsmanna Isavia til ríkissáttasemjara

Kjarasamningaviðræðum Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Isavia annarsvegar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og Isavia vegna félagsmanna sem starfa hjá Isavia, hinsvegar, hefur verið vísað til ríkissáttasemjara.

Í tilkynningu segir að í gærkvöldi hafi orðið ljóst að samningsaðilar næðu ekki saman eftir viðræður síðustu vikna. „Því ákváðu ofangreind félög að vísa kjaradeilunni við Isavia og Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara,“ segir ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×