Lífið

Sum grillpartý eru skemmtilegri en önnur

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum hljómsveitarinnar HumanWoman á Faktory síðasta sunnudag undir yfirskriftinni „Með kokteil í hönd niðr'á strönd".

Hljómsveitina HumanWoman skipa þeir Gísli Galdur og Jón Atli en sá síðarnefndi fagnaði einnig afmæli sínu þennan dag. Af því tilefni var haldin heljarinnar grillveisla þar sem gestum var boðið upp á ljúffengan Grand Orange kokteil, kjúklingaspjót og sykurpúða.

HumanWoman undirritaði fyrir skemmstu samning við þýskt útgáfufyrirtæki sem er með danska snillinginn Trentemøller á sínum snærum. DJ Margeir færði vini sínum Jóni Atla, sem einnig gengur undir nafninu Sexy Lazer, safndisk með lögum sem öll innihalda orðið sexy. Hljómuðu því lögin You Sexy Thing og Sexy Eyes þar sem fólk söng með og naut veðurblíðunnar. Sjá grillpartýmyndir hér.

Komdu með okkur í bíó!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×