Gagnrýni

Korn stekkur á dubstep-vagninn.

Atli Fannar Bjarkason skrifar
The Path of Totality með Korn.
The Path of Totality með Korn.
Korn. The Path of Totality.



Enginn skal efast um áhrif og árangur Korn á tónlistarsviðinu. Hljómsveitin var einu sinni ein vinsælasta ný-þungarokkhljómsveit heims og hefur gefið út frábærar plötur á borð við fyrstu plötuna, sem hét einfaldlega Korn, og Life is Peachy.

En hvað er Korn að spá í dag?Jú, Korn hefur stokkið á dubstep-vagninn. Á nýjustu plötu sinni fær hljómsveitin ýmsa tónlistarmenn til að vinna með sér lögin sem eru öll í takt við það sem er að gerast í tónlistarheiminum í dag. Korn kryddar svo blönduna með söng Jonathans Davis og trommu- og bassaleik sem við ættum að kannast við.

Útkoman er ekkert meira en sæmileg. Nokkur fín lög er að finna á plötunni, fullt af grípandi viðlögum, en manni finnst þó alltaf eins og hér sé um endurgerð Korn-lög að ræða, en ekki nýtt efni frá hljómsveitinni.

Fín plata, ekki mikið meira en það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.