Innlent

Fimmtán þúsund konur tók þátt í kvennahlaupinu

Fjöldi kvenna tók þátt í hlaupinu í dag.
Fjöldi kvenna tók þátt í hlaupinu í dag.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og annað sinn, í dag. Góð þátttaka var í hlaupinu. Um 15.000 konur tóku þátt á 84 stöðum út um allt land og á um 18 stöðum erlendis.

Um 5000 konur hlupu í Garðabænum, 1700 í Mosfellsbæ sem er um 400 fleiri en í fyrra, 650 á Akureyri og um 400 konur erlendis.

Boðið var upp á mismunandi vegalengdir allt frá 2 km upp í 20 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman.

Fyrir þær konur sem ekki gátu tekið þátt í dag, verður Kvennahlaupið haldið í Ölfusi 16. júní og í Þykkvabæ 17. júní.

Á Seyðisfirði gátu þátttakendur valið um þrjár vegalengdir. Þrjár konur fóru 20 km og lögðu þær af stað kl. 7:30 og komu í mark kl. 10:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×