Banna brask með skuldatryggingar 10. mars 2011 09:00 Skuldatryggingar Aðeins þeir sem hafa réttmæta ástæðu til að tryggja sig gegn greiðslufalli ríkis mega kaupa skuldatryggingar samkvæmt nýjum lögum Evrópuþingsins. fréttablaðið/AFP-NordicPhotos
Evrópuþingið hefur samþykkt löggjöf þar sem settar eru þröngar skorður við þeim viðskiptum sem sætt hafa hvað mestri gagnrýni í kjölfar efnahagskreppunnar, þ.e.a.s. skuldatryggingar ríkisskulda annars vegar og skortsölur hlutabréfa hins vegar. Samkvæmt samþykkt Evrópuþingsins mega þeir einir kaupa sér skuldatryggingar vegna ríkisskulda sem hafa lánað viðkomandi ríki fjármuni eða eru eigendur verðbréfa sem talin eru nátengd greiðsluhæfi þess ríkis. Ríki Evrópusambandins þurfa að staðfesta löggjöfina áður en hún tekur gildi. Nái lögin fram að ganga er talið að þau fari langt með að binda endi á spákaupmennsku með skuldatryggingar Evrópuríkja, segir á vef Euobserver. Þá hefur Evrópuþingið samþykkt að herða reglur um skortsölur. Taki þau gildi verða frestir til þess að loka skortstöðum þrengdir verulega og háar sektir lagðar við brotum á reglunum.- pg
Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira