Innlent

Fóru út af nánast samtímis á svipuðum slóðum

Enginn slasaðist alvarlega þegar tveir bílar fóru nánast samtímis út af á Biskupstungnabraut upp úr klukkan tvö í nótt og höfnuðu ofan í skurðum.

Rétt áður hafði gert slyddu og myndaðist óvænt ísing, sem ökumennirnir vöruðu sig ekki á. Ökumaður annars bílsins ætlaði sjálfur að leita læknis þar sem hann var eitthvað lemstraður, en aðrir sluppu alveg ómeiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×