Innlent

Læknar fái aðgang að upplýsingum um fíkniefnabakgrunn sjúklinga

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Landlæknir segir að verið sé að skoða möguleika á að læknar fái aðgang að upplýsingum um bakgrunn sjúklinga í fíkniefnaneyslu til að minnka framboð af rítalíni ávísað af læknum meðal fíkniefnaneytenda.

Ellefu einstaklingar hafa greinst HIV jákvæðir á árinu, þar af tíu sprautufíklar sem smituðust því þeir deildu nálum með einstaklingum sem voru smitaðir af HIV en sprautufíklarnir voru allir að sprauta sig með rítalíni sem ávísað var af læknum, en mikið framboð virðist af slíkum efnum í undirheimum.

Læknar sem fréttastofa hefur rætt við segja að þó mikið læknadóp sé í umferð sé einnig framboð af rítalíni hér á landi frá útlöndum, en þær upplýsingar koma frá fíklunum sjálfum. Mikið hömlu- og skeytingarleysi virðist einkenna þessa undirheimaveröld sprautufíkla því fíklar sem hafa greinst HIV jákvæðir hafa gefið læknum þær skýringar að þeir hafi vitað að þeir væru að sprauta sig með HIV jákvæðu fólki, en fíknin hafi verið yfirsterkari og því hafi þeir engu skeytt um þótt sömu nálar væru notaðar.

Sprautufíklar á rítalíni þurfa að sprauta sig sex til tíu sinnum á sólarhring, mun oftar en fíklar á öðrum efnum, sem eykur á smithættu deili þeir nálum. Læknar á smitsjúkdómadeild Landspítalans hafa miklar áhyggjur af þessu, en þeir vilja að stjórnvöld grípi til aðgerða strax til að draga úr framboði á rítalíni.

Grípa þarf strax til aðgerða

Í bréfi Más Kristjánssonar, yfirlæknis smitsjúkdómadeildar LSH, til landlæknisembættisins frá 13. maí sl. segir að brýnt sé að landlæknir beiti sér af öllu afli gegn þeirri óheillaþróun sem eigi sér stað í samfélaginu og að hemja þurfi dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax.

Hvað ætlið þið að gera? „Við erum að vinna í þessu. Við höfum frá 1. janúar sett mjög ákveðnar takmarkanir á lyfjaávísanir að rítalíni, tengdar við ákveðna sérfræðinga sem síðan eru tengdir við ákveðna lækna sem eiga að þekkja til viðkomandi einstaklinga sem eru að taka lyfin. Þetta er allt til þess að tryggja að sá einstaklingur sem noti lyfið sé undir góðu eftirliti," segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir.

Smitsjúkdómalæknar sem fréttastofan hefur rætt við segja að það þurfi að breyta lögunum þannig að þeir læknar sem eru að ávísa þessum rítalín lyfjum geti séð á sjúkraskrá viðkomandi sjúklings hvort hann eigi sér bakgrunn með fíkniefnaneyslu. Þarf ekki að gera þetta mögulegt? „Þetta væri mjög æskilegt og þér að segja þá erum við einmitt að skoða hvaða möguleika við höfum í samkeyrslu ákveðinna upplýsinga. Til dæmis þar sem upplýsingar eru um fíkn viðkomandi, að það sé aðgengilegt hjá þeim lækni sem sé að sinna viðkomandi sjúklingi, þannig að hann geti á grunni þess tekið ákvarðanir. Þetta er stórt mál og við erum að vinna í þessu núna," segir Geir. thorbjorn@stod2.is


Tengdar fréttir

Allir sem greinst hafa með HIV notuðu rítalín frá læknum

Allir þeir sprautufíklar sem greinst hafa HIV jákvæðir á þessu ári sprautuðu sig með rítalíni í æð sem ávísað var af læknum. Yfirlæknir smitsjúkdóma segir að hemja verði dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax.

HIV smitaðra sprautufíkla leitað

Fjórir HIV smitaðir fíklar ganga lausir og gætu smitað aðra finnist þeir ekki í tæka tíð. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir algengt að spítalinn þurfi aðstoð lögreglu til að hafa upp á HIV smituðum fíklum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×