Innlent

Lionsklúbburinn Ásbjörn færir lögreglunni hjartastuðtæki

Magnús Gunnarsson formaður lionsklúbbsins afhenti Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra hjartastuðtækið.
Magnús Gunnarsson formaður lionsklúbbsins afhenti Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra hjartastuðtækið. Mynd af vef lögreglunnar.
Lionsklúbburinn Ásbjörn færði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær hjartastuðtæki sem verður til taks í útkallsbíl lögreglunnar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar en það var Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á  höfuðborgarsvæðinu, sem veitti gjöfinni viðtöku.

Tækið sem ber nafnið Lifepak CR Plus er alsjálfvirkt og gefur fyrirskipanir á íslensku.  Það getur tengst hjartastuðtækjum í öllum sjúkrabílum á landinu en ásamt fylgihlutum kostar tækið um 250 þúsund krónur.

Árlega fara um 300 manns í hjartastopp á Íslandi en þegar slíkt gerist skiptir hver mínúta máli og getur stuttur viðbragðstími skilið milli lífs og dauða. Lögregla er oft fyrsti viðbragðsaðili á staðinn og er því mjög mikilvægt að tækjabúnaður hennar sé fyrsta flokks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×