Innlent

Unglingur hætti að taka lyf við ADHD og byrjaði að neyta kannabis

Erla Hlynsdóttir skrifar
Faðir ungs manns sem hætti að taka lyfin sín við ADHD hefur áhyggjur af þeim fordómum sem þeir mæta sem á lyfjunum þurfa sannarlega að halda
Faðir ungs manns sem hætti að taka lyfin sín við ADHD hefur áhyggjur af þeim fordómum sem þeir mæta sem á lyfjunum þurfa sannarlega að halda Mynd úr safni
Faðir ungs manns sem hætti að taka lyf við ADHD og fór í dagneyslu á kannabisefnum, segir erfitt að hafa horft upp á son sinn dofinn af fíkniefnum. Í dag hefur sonurinn farið í meðferð og er aftur byrjaður að taka lyfin sín, með jákvæðum árangri.

„Forgangsatriðið er að stöðva ofnotkun á rítalíni. Það eru allra hagsmunir. Það þarf hins vegar að vera tryggt að þeir sem þurfa á slíkum lyfjum að halda geti fengið þau og að þeir verði ekki fyrir aðkasti," segir faðir ungs manns með ADHD-greiningu.

Stjórn ADHD-samtakanna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að fjöldi barna og ungmenna með ofvirkni og athyglisbrest neiti að taka lyfin sín vegna þeirrar neikvæðu umræðu sem átt hefur sér stað um þau að undanförnu.

Neikvæð umræða um þessi lyf og fordómar í garð þeirra sem þau taka er hins vegar ekki ný af nálinni. Það er vegna fordómanna sem faðir unga mannsins treystir sér ekki til að koma fram undir nafni eða að nafn sonar hans verði birt opinberlega.

Verðlaun fyrir námsárangur

Faðirinn segir í samtali við fréttastofu að sonur hans hafi fengið ADHD-greiningu snemma á unglingsaldri. Í grunnskólanum hafi kennarar verið meðvitaðir um röskun hans og hvernig væri hægt að mæta þörfum drengsins í skólastarfi þannig að honum gengi sem best. Eftir að hann fór að taka lyf sem hjálpuðu honum að halda einkennum í skefjum og náði að einbeita sér betur að náminu. Við lok grunnskóla var hann verðlaunaður fyrir árangur í þeim greinum sem hann stóð sig best í, nokkuð sem faðir hans hafði áður talið óhugsandi.

Skyndilega breyttist allt

Þegar drengurinn síðan byrjaði í menntaskóla breyttist allt. Faðirinn segir algengt að breytingar á daglegu lífi fólks með ADHD geti haft mikið rót för með sér. Þegar sonur hans byrjaði í menntaskóla fannst honum vanta þann skilning sem hann fékk á því að hann væri með ADHD og nauðsyn þess að hann tæki lyf vegna röskunarinnar. Hann tók því ákvörðun um að hætta að taka lyfin, og taldi sig komast af án þeirra.

„Þá kynntist hann kannabis," segir faðirinn. Í kjölfarið fór drengnum stórlega aftur í námi, kannabisneyslan jókst og vanvirkni hans þar með. „Á endanum var hann kominn í dagneyslu og var í þrjú ár í massívri neyslu," segir faðirinn. Á þessum tíma gekk aftur öll sú uppbygging sem hafði átt sér stað í grunnskóla með aðstoð lyfja og góðu stuðningsneti.

Skorti aðhald að lokinni meðferð

Loks fór drengurinn í meðferð hjá SÁÁ og hefur ekki neytt kannabisefna í heilt ár. Að meðferð lokinni skorti hins vegar aðhald. Fyrstu fjóra mánuðina eftir meðferðina hrakaði honum og að lokum varð hann algjörlega stefnulaus og vanvirkur.

„Sem betur fer gátum við talað hann inn á að hitta lækni sem hefði skilning á hans röskun. Þegar hann svo fór á réttu lyfin gat hann farið að bjarga sér sjálfur, framkvæma og byggja sig upp," segir faðirinn.

Sonurinn er nú á beinu brautinni, með aðstoð nauðsynlegra lyfja, er kominn í vinnu og lítur björtum augum til framtíðar.



Tengt efni:

ADHD-samtökin

Hvað er ADHD?


Tengdar fréttir

Segir geðlækni kynna rítalín eins og snákaolíu

Nýkjörinn formaður SÁÁ, Gunnar Smári Egilsson, gagnrýnir geðlækninn Grétar Sigurbergsson, harðlega í grein sem hann skrifar á vef SÁÁ og ber yfirskriftina: Rítalín hneykslið.

Börn neita að taka Rítalín vegna umræðunnar

Foreldrar ungmenna með ADHD segja þau nú neita að taka lyfin vegna umræðunnar sem hefur átt sér stað í kringum misnotkun á metýlfenídat lyfjum og skyldum lyfjum s.s. Rítalíni og þann ömurlega veruleika sem á sér stað í undirheimum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn ADHD samtakanna sendi frá sér en fjöldi félaga eru ósáttir við það hvernig Rítalíni og skyldum lyfjum hefur nánast eingöngu verið lýst sem dópi í fjölmiðlum.

Rugl og vitleysa að við séum heimsmeistarar í rítalín neyslu

"Það er slegið fyrir neðan beltisstað, vægast sagt,“ segir Grétar Sigurbergsson geðlæknir, og fyrrverandi yfirlæknir á réttargeðdeildinni á Sogni, um grein sem formaður SÁÁ, Gunnar Smári Egilsson, skrifaði og birti á vef samtakanna gær.

Opið bréf til Gunnars Smára Egilssonar, formanns SÁÁ

Sæll, Gunnar Smári. Þú ferð mikinn í grein þinni í helgarblaði Fréttablaðsins og vefsíðu SÁÁ, þar sem þú kýst að sneiða að íslenskum geðlæknum, er þú jafnar þeim við brottrekna starfsmenn Byrgisins og Götusmiðjunnar. Þá er æði grunnt á fordómum þínum gagnvart ADHD-sjúklingum. Þarna hættir þú þér allnokkuð á hálan ís, því skrif þín bera ekki vitni um teljandi þekkingu á málefninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×