Innlent

Sóttu ferðamann sem sat fastur á Kjalvegi

Björgunarsveitarmenn úr Árnessýslu sóttu í gærkvöldi erlendan ferðamann sem fest hafði jeppa sinn í snjó á Kjalvegi, skammt frá Hveravöllum.

Þeir fluttu manninn og jeppan til byggða. Kjalvegur er lokaður vegna snjóa og aurbleytu líkt og aðrir fjallvegir, en þetta var í annað skiptið á rúmum sólarhring að hjálpa þurfti erlendum ferðamönnum í ógöngum á lokuðum fjallvegi. Fyrra tilvikið var í grennd við  Landmannalaugar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×