Fótbolti

Mourinho maður ársins á Ítalíu

Elvar Geir Magnússon skrifar

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var valinn maður ársins 2010 af hinu fræga ítalska blaði Gazzetta dello Sport. Þetta er í fyrsta sinn í 32 ár sem fótboltaþjálfari hlýtur þennan titil.

Mourinho stýrði Inter til þrennunar á nýliðnu ári en liðið vann ítalska meistaratitilinn, bikarkeppnina og Meistaradeild Evrópu. Það var í fyrsta sinn ítalskt lið afrekar að vinna hina svokölluðu þrennu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×