Gremio játar sig sigrað - Ronaldinho fer til Flamengo Elvar Geir Magnússon skrifar 9. janúar 2011 18:30
Gremio í Brasilíu hefur staðfest að Ronaldinho sé ekki á leið til félagsins. Hann mun í staðinn ganga til liðs við Flamengo á næstu dögum. Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, sagði í gær að Flamengo væri að vinna kapphlaupið um leikmanninn. Gremio er í uppeldisbæ Ronaldinho en félagið hefur einfaldlega ekki efni á að borga þá upphæð sem AC Milan vill fá fyrir leikmanninn. „Það virtist allt frágengið. Við vorum bara að bíða eftir að Ronaldinho skrifaði nafnið sitt undir. En hlutirnir breyttust skyndilega," segir Paulo Odone, forseti Gremio. „Flamengo er með öfluga styrktaraðila sem geta keypt upp samning Ronaldinho en við erum ekki í þeirri stöðu." „Við fengum þau skilaboð að hann vildi enda ferilinn hjá sínu uppáhaldsfélagi, en því miður er það ekki að fara að gerast núna." Ronaldinho er 30 ára gamall og býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Hann náði þó ekki þeim hæðum sem búist var við og er því meðal annars kennt um að skemmtanalífið hefur náð að heilla hann. Flamengo hefur fimm sinnum orðið brasilískur meistari, síðast 2009 en í fyrra var það Fluminense sem hampaði titlinum.
Ítalski boltinn Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Fleiri fréttir Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Sjá meira