Körfubolti

Ari verður aðstoðarmaður Hrafns hjá kvennaliði KR

Ari Gunnarsson og Hrafn Kristjánsson.
Ari Gunnarsson og Hrafn Kristjánsson. Mynd/KR
Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR í körfuknattleik kvenna. Hrafn Kristjánsson verður áfram aðalþjálfari liðsins og Guðmundur Daði Kristjánsson er styrktarþjálfari. Ari skrifaði undir samning til tveggja ára hjá KR en hann hefur mikla reynslu af þjálfun eftir að hafa þjálfað mfl. lið Hamars og Vals á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×