
Setning Alþingis fari fram í kyrrþey
Vafalaust bíða þeirra þreytandi kokteilboð, en kannski þurfa þeir líka að hafa fataskipti og komast í ærlegt bað eftir hina hátíðlegu þingsetningu ef fram fer sem horfir. Lögreglumenn ætla nefnilega ekki að standa heiðursvörð um athöfnina og óeirðadeildir lögreglumanna, sem gæta eiga þessa fjöreggs þjóðarinnar, hafa lýst sig afhuga slíkum starfa í ár. Það er að hluta til vegna þess að þingið hefur ekki sýnt launaþörfum þeirra áhuga, en hefur setið hjá meðan gerðardómur skammtar þeim nöturlegar ölmusur, en að hluta til vegna almennrar óánægju meðal landsmanna með störf og starfsaðferðir þingheims.
Ekki reynir Helgi þó að gera lítið úr ótta þingheims við umbjóðendur sína, alþýðu og kjósendur þessa lands, en segir þetta um fyrirhuguð mótmæli við þingsetningu í viðtali við Morgunblaðið 27. september síðastliðinn: „Ég veit að þingforseti hefur af því miklar áhyggjur, enda var það mikið slys hvernig þetta fór í fyrra.“ Hann reynir hins vegar ekki að skýra orsakir þessa „mikla slyss“, enda þótt öllum megi þær vera ljósar. Helgi hefur greinilega verið gerður út af örkinni til þess að lægja öldur almennrar óánægju og þá er fátt betra en að halda umdeildar samkomur í skjóli nætur eða haustmyrkurs.
Svo má spyrja hvers vegna setningu Alþingis stafar ógn af umbjóðendum sínum og þeirri spurningu hefði þingheimur sjálfur átt að varpa fram áður en í óefni var komið. Kannski óttast hann svarið eftir að ekki er lengur hægt að dylja hvernig helstu skjólstæðingar þingmanna, vinaklíkan innan bankanna og fjárfestingaraðalsins, hafa fengið afskrifuð öll sín kúlulán, skuldavafninga og önnur augljós lögbrot. Svarið verður þeim kannski enn ógnvænlegra þegar á það er litið að þriðjungur þjóðarinnar stendur uppi slyppur, snauður og gjaldþrota eftir góðærin sem þingheimur hyllti sem mest hér á árum áður. Þingmenn þekkja svarið vel og vita upp á sig skömmina, þess vegna sneiða þeir hjá spurningunni og gera Helga Bernódusson út af örkinni til að segja þjóðinni að þeir ætli að taka þingsetningarhelgina snemma í ár.
Sannleikurinn er svo sáraeinfaldur að enginn getur komist hjá því að sjá hann, nema hann hafi einhverja hagsmuni af lyginni. Það er vitað að Alþingi hefur gert sitt ýtrasta til að koma gjaldþrota bönkum, sparisjóðum og fjárfestingarfyrirtækjum aftur í hendur þeirra óreiðumanna sem keyrðu þá á hausinn. Bankar og fjármálastofnanir eru sjálf slagæð kapítalismans og þess vegna hafa allir aðrir hagsmunir verið látnir sitja á hakanum. Endurreisa á kapítalismann og frjálshyggjuþvættinginn líka og svo má það einu gilda hvort vinnandi fólki blæðir eða ekki. Það virðist svo sem hobbý-sósíalistinn Steingrímur J. Sigfússon hafi slíka ofurtrú á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og bankahugsjónum hans, að hann sjái ekki að kapítalisminn er ekki bara búinn að rýja alþýðu Íslands inn að skinninu, heldur er hann kominn langt á leið með að keyra auðugustu þjóðríki hins vestræna heims ofan í forarpytt gjaldþrota, kreppu og neyðar.
Þegar hann segir fyrir hönd ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að allt gangi vel á Íslandi er hann annað hvort siðferðilega blindur eða hallur undir blákaldar lygar. Ég get bara minnt þau skötuhjúin á orð Bertolt Brecht, sem á sínum tíma ku hafa ráðlagt yfirvöldum Austur-Þýskalands að skipta einfaldlega um þjóð ef svo skyldi fara að þjóðin þráaðist við að hlýðnast ógnarstjórn þeirra.
Það er aumlega komið fyrir þingi og þingmönnum okkar Íslendinga, þeir hafa málað sig út í horn með fáránlegum hætti. Nú virðist bara tvennt vera til í stöðunni fyrir hið háa Alþingi, annað hvort að kveðja nánustu vini sína meðal útrásarvíkinga, kúlulánþega og bankastjóra til heiðursvörslu og óeirðavarna við Dómkirkjuna, eða láta setningu Alþingis fara fram í kyrrþey. Kransar, blóm og mótmæli verði þá að sjálfsögðu afþökkuð.
Skoðun

Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara
Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar

Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Hugleiðingar um virðismat kennara
Bergur Hauksson skrifar

Hvar stendur barnið mitt í námi?
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir skrifar

Áslaug Arna er framtíðin
Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar

Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt
Einar Ólafsson skrifar

Minna af þér og meira af öðrum
Heiða Björk Sturludóttir skrifar

Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar
Ísabella Markan skrifar

Að koma skriðdreka á Snæfellsnes
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Ræstitækni ehf.: Fríríki atvinnurekandans
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar

Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu?
Davíð Bergmann skrifar

Skiptir hugarfarið máli?
Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Við þurfum ekki að hafa alla með okkur í liði
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Verkfærakistan er alltaf opin
Ástþór Ólafsson skrifar

Píratar til forystu
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Beðið fyrir verðbólgu
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Minni pólitík, meiri fagmennska
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Ný krydd í skuldasúpuna
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019
Heimir Örn Árnason skrifar

Að spila með – Samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna
Berglind Sveinbjörnsdóttir,Þórhildur Halldórsdóttir skrifar

Er Inga Sæland Þjófur?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Kona
Anna Kristjana Helgadóttir skrifar

Bókun 35, 38 og tækifæri fyrir ungt fólk í Brussel
Gunnar H. Garðarsson skrifar

Orð skulu standa
Jón Pétur Zimsen skrifar

Dúabíllinn og kraftur sköpunar
Einar Mikael Sverrisson skrifar

Enginn er betri en þú – enginn er snjallari en þú
Árni Sigurðsson skrifar

Viljum við það besta fyrir börnin okkar?
Hilmar Þór Sigurjónsson skrifar

Stéttin sem Sjálfstæðisflokkurinn kaus að yfirgefa
Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar