Voru ekki tilbúin að lýsa yfir stuðningi við stefnu ríkisstjórnarinnar Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. janúar 2011 12:49 Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttur.
Þrír þingmenn Vinstri grænna, þeir sömu og sátu hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlög, voru ekki tilbúnir að styðja ályktun um stuðning við stefnu ríkisstjórnarinnar á þingflokksfundi Vinstri grænna í gær. Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður og þingmennirnir Lilja Rafney Magnúsdóttir og Þuríður Backman lögðu fram tillögu fyrir þingflokksfund Vinstri grænna í gær um stuðning við ríkisstjórnina og stefnu hennar. Ekki tókst að afgreiða tillöguna vegna andstöðu þriggja þingmanna, þeirra sömu og sátu hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlögin hinn 16. desember sl. Að sögn Lilju Rafneyjar varð aldrei atkvæðagreiðsla um tillöguna. Hún sagði í samtali við fréttastofu í morgun að andstaða Lilju Mósesdóttur, Ásmundar Einars og Atla Gíslasonar hefði birst þannig að þremenningarnir hafi ekki talið tímabært að afgreiða tillöguna að svo stöddu. Hún sagði að enginn þrýstingur hafi verið á þau að styðja tillöguna. Niðurstaðan hafi því verið að ræða málefnin betur í framhaldinu. Vilja ræða ágreining um málefni frekar Ásmundur Einar, hvers vegna vilduð þið þrjú ekki styðja tillöguna um að lýsa stuðningi við ríkisstjórnina? „Þetta var í fyrsta lagi mjög góður fundur. Þarna voru hreinskiptnar og opnar samræður um þau mál sem hefur verið ágreiningur um innan Vinstri grænna. Menn voru sammála um það á fundinum að taka þyrfti þessi mál aðeins áfram. Það náðist t.d ekki að ræða málin til enda, eins og t.d Evrópusambandsmálin og þann ágreining sem verið hefur um þau. Þess vegna voru menn sammála um að taka þessi mál áfram á næstu fundum," segir Ásmundur Einar. Fundurinn í gær var sáttatilraun, en nokkuð harðar deilur hafa verið í þingflokknum. M.a hefur starfandi þingflokksformaður sakað þremenninganna sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga um þvingunaraðgerð til að fá ríkisstjórnina til að breyta um stefnu. Að sögn Ásmundar Einars kemur þingflokkurinn aftur saman næsta mánudag og verða þá málefnin og stefna ríkisstjórninarinnar rædd frekar.
Mest lesið Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Frans páfi er látinn Erlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Innlent Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Erlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Fleiri fréttir Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti Maðurinn er laus úr haldi „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Sjá meira