Árni og félagar heitir á lista BBC 6. janúar 2011 10:00 Árni Hjörvar er bassaleikari bresku hljómsveitarinnar The Vaccines, en henni er spáð miklum frama í Bretlandi á árinu. fréttablaðið/stefán
Bassaleikarinn Árni Hjörvar Árnason og félagar í bresku hljómsveitinni The Vaccines eru í þriðja sæti á lista breska ríkisútvarpsins BBC yfir heitustu hljómsveitir ársins 2011. BBC birtir ný nöfn á listanum vikulega, en aðeins annað og fyrsta sæti er eftir. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á dögunum er annasamt ár fram undan hjá Árna og félögum í The Vaccines. Hljómsveitinni, sem var stofnuð í fyrra, er spáð miklum frama og fyrsta platan er væntanleg í mars. The Vaccines er bókuð á tónleika fram í október, verður á tónleikaferðalagi breska blaðsins NME í febrúar og er ein af heitustu nýju hljómsveitum ársins samkvæmt MTV. BBC birtir listann árlega, en hann er settur saman af 160 gagnrýnendum, tónlistarbloggurum og fjölmiðlamönnum. Á meðal hljómsveita sem komust á listann áður en þær slógu í gegn eru MGMT, Kaiser Chiefs, Vampire Weekend og Klaxons. Þá komust listamenn á borð við Lady Gaga, Duffy og Mika á listann áður en þau urðu alþjóðlegar ofurstjörnur. Það er þó alls ekki gefið að slá í gegn þrátt fyrir að komast á lista BBC. Það hafa til að mynda fáir heyrt um hljómsveitina Kubb sem var á listanum árið 2006. Hljómsveitin Passion Pit bíður einnig eftir því að slá í gegn, en hún var á listanum árið 2009. - afb
Mest lesið Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Lífið Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Lífið Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Lífið Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Lífið Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Lífið Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Lífið Frægustu vinslit Íslandssögunnar Lífið Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Lífið Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Lífið Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Lífið Fleiri fréttir Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Raf- og danstónlistarveisla í Austurbæjarbíó Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Glæsihús á Seltjarnarnesi á 240 milljónir Fór í tvær lýtaaðgerðir á sama deginum Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Öskurdrottningin Lar Park Lincoln er látin Sautján langveik börn fengu ferðastyrk Syngja Húsavík á Húsavík með stúlknakórnum Laufey og Júnía fögnuðu afmælisdeginum í Disney-garðinum Egill Logi Jónasson valinn bæjarlistamaður Akureyrar Frægustu vinslit Íslandssögunnar Stefán Einar og Sara Lind í sundur Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með Tólf og þrettán ára fatahönnuðir á Akureyri slá í gegn Taka ákvörðun á hverjum degi að elska hvort annað Ósamþykkt kjallaraíbúð á rúmar 44 milljónir Hélt að Sálin hafi hvatt fólk til að horfa til himins með höfuðið hátt Hátíð sem er skipulögð í kringum yngstu kynslóðina Laufey Lín skartaði íslenska fánanum á Coachella Viðar Örn og Sylvía Rós eiga von á barni Heillandi hús við Laugalæk úr smiðju Kjartans Sveinssonar Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Hafa aldrei rifist Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Sjá meira