Innlent

90 milljónirnar gengu ekki út

Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Annar vinningur gekk ekki heldur út né jókerinn. Fyrsti vinningur í lottóinu í kvöld var rúmlega 90 milljónir króna því má gera ráð fyrir að vegleg upphæð verði í pottinum næsta miðvikudag.

Þó voru þrír Íslendingar sem voru með fjórar jókertölur réttar í röð og fær hver 100 þúsund krónur.

Tölurnar í kvöld voru: 1 - 5 - 9 - 21 - 31 - 32

Bónustölurnar voru: 2 og 30

Ofurtalan var 35

Jókertölurnar voru: 8 - 2 - 4 - 3 - 8






Fleiri fréttir

Sjá meira


×