Innlent

Reyndu að stinga öryggisvörðinn af

Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði
Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði
Par undir tvítugu braust inn í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Þau klifruðu yfir girðingu og skelltu sér í heitu pottana þar sem þau dvöldu í dágóða stund áður en þjófavarnarkerfi laugarinnar fór í gang.

Það var öryggisvörður frá Securitas sem kom að þeim og tók parið þá til fótanna á sundfötunum. Öryggisvörðurinn náði þeim þó að lokum og kallaði á lögreglu.

Stelpan er 16 ára gömul en strákurinn 18 ára. Haft var samband við foreldra stúlkunnar, þar sem hún er undir lögaldri, og sóttu þau stelpuna sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×