Héðinsfjárðargöng kostuðu tæplega 16 milljarða, 17% meira en áætlað var. Þetta kemur fram á vef Vegerðar ríkisins.
Kostnaðurinn skýrist fyrst og fremst vegna aukins kostnaðar vegna vatns í Ólafsfjarðarhluta ganganna.
„Efnahagshrunið sem varð hér árið 2008 hjálpaði heldur ekki til,“ segir í fréttinni á vef Vegargerðarinnar.
Enn fremur segir í fréttinni að kostnaður við Bolungarvíkurgöng hafi staðist áætlun nokkuð nákvæmlega.
Orðrétt segir í fréttinni á vef Vegargerðarinnar:
„Í umræðu um kostnað við gangagerð, nú síðast á opnum nefndarfundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, hefur því ranglega verið haldið fram að umframkostnaður við þessi göng hlaupi á jafnvel 80-90 prósentum. Því fer fjarri.
Líklega hefur þetta komist inn í umræðuna með því að menn hafi tekið upphaflegu áætlunina og látið vera að umreikna hana til verðlags og borið síðan saman við endanlegan kostnað á allt öðru verðlagi.
Í verksamningum vegna byggingar ganganna eru ákvæði um að verkin séu verðbætt miðað við þróun byggingarvísitölunnar, líkt og gert er í öllum stærri verksamningum.
Uppreiknaður kostnaður við Héðinsfjarðargöng til verðlags í dag nemur 15.490 millj. kr. Áætlunin var á sínum tíma (2006) 7.500 millj. kr og uppreiknuð til sama verðlags reynist hún 13.220 millj. kr. Þannig er kostnaður umfram áætlun 17,2 prósent. Byggingarvísitalan var 316,7 stig í janúar 2006 þegar áætlunin var gerð en er nú í nóvember 2011 558,2 stig.
Sé kostnaður við Bolungarvíkurgöng uppreiknaður á sama hátt þá reynist hann 7.460 millj. kr. Áætlunin á sínum tíma (2007) hljóðaði upp á 5.070 millj. kr og umreiknað til verðlags í dag reynist áætlunin því vera 7.510 millj. kr eða nánast það sama og raunkostnaðurinn. Reyndar lægri ef eitthvað er. Byggingarvísitalan var 367,7 stig í nóvember 2007 þegar áætlunin var gerð en er nú nóvember 2011 558,2 stig.“
Héðinsfjarðargöng fóru langt fram úr áætlun
