Lífið

Brostu og láttu gott af þér leiða

Föstudaginn 7. október hefst sala á brospinnum eins og Patrekur Jóhannesson, Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi, og Gunnar Þór Andrésson, sýna í meðfylgjandi myndskeiði.

Endurhæfing LR, sem er deild innan geðsviðs Landspítalans sem þjónustar ungt fólk með geðrænar raskanir, stendur fyrir sölunni.

Lagt er upp með að skapa aðstæður sem hlúa að reglusömum lífsstíl og heilsu einstaklingsins á meðan á endurhæfingu stendur.

Sjá nánar Brospinnar.is.

Hægt er að panta brospinna í gegnum netfangið brospinni@gmail.com og fá brosið sent heim í pósti eftir að búið er að ganga frá kaupum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×