Óliðlegt hjá borginni að moka ekki eldri borgara út Valur Grettisson skrifar 8. febrúar 2011 13:41 Snjómokstur. Myndin er úr safni. „
Ég hef ekki heyrt svona lagað áður og finnst þetta heldur óliðlegt hjá borginni," segir Sigurður Einarsson, framkvæmdarstjóri Félags eldri borgara í Reykjavík, en Vísir greindi frá því í morgun að maður á níræðisaldri væri fastur heima hjá sér eftir að borgin stíflaði innkeyrsluna hans eftir snjómokstur. Maðurinn, sem býr í hlíðunum, getur ekki mokað sig út með góðu móti, og hringdi í Vísi og greindi frá óánægju sinni. Þegar rætt var við Guðna Hannesson, yfirverkstjóra gatnahreinsunar hjá Reykjavíkurborg, fengust þau svör að borgarbúar þyrtu að bíta í þetta súra epli. Fjölmargar kvartanir hafa borist borgaryfirvöldum vegna sama vandamáls að sögn yfirverkstjórans en, „við getum ekki látið snjóinn hverfa," sagði Guðni. „Mér finnst eðlilegt að gamalt fólk fái einhvern til þess að moka sig út," segir Sigurður og bætir við að það sé sennilega ekki auðvelt fyrir gamalt fólk að skófla sig út úr hörðum skafli sem vélskófla hefur hrúgað saman. Eldri borgarar eiga rétt á margvísislegri þjónustu, „en ekki svona," segir Sigurður og bætir við: „Mér finnst þetta bara óliðlegt hjá borginni."
Tengdar fréttir Níræður fastur í innkeyrslunni: „Það er ekkert við þessu að gera“ „Við getum ekki bara látið snjóinn hverfa," segir Guðni Hannesson, yfirverkstjóri gatnahreinsunar hjá Reykjavíkurborg, en það hefur verið óvanalega snjóþungt í borginni síðastliðna daga. Svo hefur borið á því að snjór hefur stíflað innkeyrslur eftir mokstur. 8. febrúar 2011 11:26 Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Fleiri fréttir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Sjá meira
Níræður fastur í innkeyrslunni: „Það er ekkert við þessu að gera“ „Við getum ekki bara látið snjóinn hverfa," segir Guðni Hannesson, yfirverkstjóri gatnahreinsunar hjá Reykjavíkurborg, en það hefur verið óvanalega snjóþungt í borginni síðastliðna daga. Svo hefur borið á því að snjór hefur stíflað innkeyrslur eftir mokstur. 8. febrúar 2011 11:26