Lífið

Þykir of mjó

reið á veitingahúsi Söngkonan LeAnn Rimes fékk að heyra það frá veitingahúsagesti sem hvatti hana til að borða meira. Nordicphoto/getty
reið á veitingahúsi Söngkonan LeAnn Rimes fékk að heyra það frá veitingahúsagesti sem hvatti hana til að borða meira. Nordicphoto/getty
Kántrísöngkonunni LeAnn Rimes brá heldur í brún þegar gestur veitingahúss vatt sér að henni og skammaði hana fyrir að vera of mjó. Rimes, sem sat að snæðingi ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Eddie Cibrian, var mjög brugðið og skrifaði svo reiðilestur til konunnar á samskiptavefnum Twitter þegar heim var komið.

„Hvernig vogaði hún sér að koma upp að borðinu mínu og segja mér að borða meira? Er ekki allt í lagi með fólk? Á meðan ég þarf að borða meira þarf hún að læra mannasiði.“

Holdafar Rimes hefur verið í kastljósi fjölmiðla en hún þykir vera of mjó og hafa grennst hratt síðustu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.