Innlent

Ferðir Herjólfs falla niður vegna ölduhæðar

Herjólfur
Herjólfur
Vegna ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hafa ferðir Herjólfs klukkan 11:30 frá Eyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn verið felldar niður.

Þeir farþegar sem áttu miða í þessar ferðir færast þá sjálfkrafa á næstu ferðir sem farnar verða klukkan 14:30 frá Vestmannaeyjum og 16:00 frá Landeyjahöfn.

Í tilkynningu frá Eimskipum er athygli vakin á því að ekki sé gott útlit með næstu ferðir Herjólfs og því eru farþegar beðnir að fylgjast með frekari tilkynningum á heimasíðu Herjólfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×