Innlent

Gagnrýnir Boston Globe fyrir að greina frá nafni Önnu Björns

Mynd/AP

Fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum gagnrýnir blaðið Boston Globe sem greindi frá því í gær að Anna Björnsdóttir hefði sagt alríkislögreglunni bandarísku frá því hvar glæpaforinginn James Bulger gæti verið niðurkominn.

Dagblaðið Boston Herald fjallar um málið í dag eins og raunar flestir miðlar heimsins en Bulger var um tíma eftirlýstasti maður Bandaríkjanna og voru tvær milljónir dollara settar til höfuðs honum. Hann var handtekinn í sumar og fljótlega var greint frá því að ábending um dvalarstað hans hefði komið frá Íslandi. Nú hefur Boston Globe greint frá því að sú sem benti lögreglu á Bulger hafi verið Anna Björnsdóttir sem bjó um tíma í sama húsi og Bulger og lagskona hans. Bandaríska alríkislögreglan hafði heitið því að nafn Önnu yrði ekki gefið út en blaðamaður Boston Globe komst hinsvegar að því og greindi frá í gær.

Michael Sullivan, fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum segir að ekki sé fyllilega hægt að ábyrgjast öryggi Önnu og gagnrýnir hann blaðið harðlega fyrir að nafngreina hana. Það sé ónauðsynlegt og gæti dregið úr líkum á því að fólk verði í framtíðinni fáanlegt til að koma fram og greina frá vitneskju sinni.

Hann bendir hinsvegar á að Bulger, sem orðinn er 82 ára gamall og er sakaður um nítján morð, sé hataður af flestum gömlu samstarfsfélögunum og því ólíklegt að einhver vilji leggja það á sig að hefna fyrir handtöku hans.


Tengdar fréttir

Fullyrða að upplýsingar um glæpaforingja hafi komið frá Íslandi

Það var kona, búsett á Íslandi, sem veitti Alríkislögreglunni í Bandaríkjunum, FBI, upplýsingar sem leiddu til þess að James “Whitey” Bulger var handtekinn á miðvikudag. Þetta fullyrðir fréttastofa í Boston í Bandaríkjunum. Fréttastofan segist hafa þetta eftir heimildum úr lögreglunni.

„Whitey" Bulger handtekinn í Santa Monica

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur handtekið James "Whitey" Bulger, glæpaforingja frá Boston sem hefur verið á flótta í sextán ár. Bulger var efstur á lista þeirra sem alríkislögreglan vill ná í eftir að Osama Bin Laden var drepinn í Pakistan á dögunum.

Fríða kom upp um „dýrið“

"Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur.

Bulger veldur titringi innan bandarísku alríkislögreglunnar

Handtaka James "Whitey“ Bulger hefur valdið titringi innan bandarísku alríkislögreglunnar í ljósi þess að Bulger, sem er 81 árs gamall, var uppljóstrari lögreglunnar á sama tíma og hann var nokkurskonar glæpakóngur í Boston.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×