Viðskipti erlent

Solomon er nýtt andlit Iceland

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stacey Solomon sló í gegn í X Factor.
Stacey Solomon sló í gegn í X Factor.
Stacey Solomon er nýtt andlit Iceland matvörukeðjunnar. Solomon er fyrrverandi keppandi í X Factor og komst í úrslit árið 2009. Hún mun á næstunni birtast í fjölda auglýsinga á vegum Iceland.

„Ég er mjög spennt fyrir því að fara að vinna með Iceland matvörukeðjunni. Ég get ekki trúað þessu ennþá,“ hefur fréttavefur The Sun eftir Solomon. „Ég get varla beðið eftir því að fara að taka upp auglýsingarnar,“ segir Solomon.

Solomon er 21 árs gömul. Hún fetar í fótspor Kerry Katona sem var rekin sem andlit Iceland vegna fíkniefnaneyslu og annarsskonar óhóflegs lífernis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×