Lífið

Elton í brúðkaupið

Elton John og eiginmaðurinn David Furnish verða meðal gesta í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins.
Elton John og eiginmaðurinn David Furnish verða meðal gesta í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins.
Sir Elton John hefur staðfest að hann hafi fengið boðskort í brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton og verður á meðal gesta. Elton hafði upphaflega neitað því að hann og eiginmaðurinn, David Furnish, yrðu meðal gesta en hefur nú leiðrétt það. Brúðkaupið verður sem kunnugt er 29. apríl næstkomandi.

Elton er tengdur fjölskyldu prinsins tilfinningaböndum en hann flutti lag sitt, Candle in the Wind, í jarðarför móður hans, Díönu prinsessu, árið 1997.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×