Lífið

Sígild bók Ingólfs endurútgefin

Ingólfur Margeirsson.
Ingólfur Margeirsson.
„Ég var búinn að vera í Skruddu í fimmtán ár og mig langaði til að gera eitthvað annað,“ segir Ívar Gissurarson, nú fyrrverandi forleggjari hjá Skruddu.

Ívar er búinn að setja íbúð sína í miðbæ Reykjavíkur í leigu og er fluttur til smábæjarins Sjöpo í Svíþjóð ásamt konu sinni. Þar hyggst hann verða innan handar dóttur sinni sem er að fara í framhaldsnám, og vera afi í hjáverkum.

Ívar hefur þó ekki alveg sagt skilið við bókaútgáfu því í prentsmiðju er komin endurútgáfa á bók Ingólfs heitins Margeirssonar, Lífsjátning: Endurminningar Guðmundu Elíasdóttur söngkonu. Ástæðan er sú að Ívar er að standa við gefið loforð. „Við Ingólfur erum frændur, hann er móðurbróðir minn. Við sátum saman þegar ég var búinn að taka þessa ákvörðun og vorum að rabba saman. Hann hafði mikinn áhuga á því að við færum að bralla eitthvað saman og ég lofaði honum að fyrst skyldi ég gefa út eftirlætisbókina mína, Lífsjátningu. Þetta er því draumur okkar beggja að rætast,“ en Ívar segist hafa heyrt það út undan sér að bókin sé í miklum metum hjá ungum konum um þessar mundir. „Ingólfi hefði þótt vænt um að heyra það.“

Ívar útilokar ekki að fara út í bókaútgáfu á nýjan leik en það verði hins vegar aldrei jafn stórt í sniðum og Skrudda var. „Hugurinn er alveg farinn að mjatla en ég ætla þá að gera eitthvað sem hef gaman af og þykir vænt um.“- fgg


Tengdar fréttir

Fyrsta platan frá Two Step Horror

Dúóið Two Step Horror, sem er skipað Þórði Grímssyni og Önnu Margréti Björnsson, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Living Room Music. Parið samdi plötuna veturinn 2008 til 2009 í stofunni heima hjá sér. Hún kom út í Bretlandi í maí hjá óháðu bresku útgáfunni Outlier Records. Platan er núna fáanleg í 12 Tónum, Smekkleysu og Lucky Records.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×