Sport

Hanskarnir hans Haye á leið upp í hillu

Haye í bardaganum gegn Klitschko.
Haye í bardaganum gegn Klitschko.
Fyrrum þungavigtarmeistarinn í hnefaleikum, David Haye, er væntanlega að fara að leggja hanskana á hilluna. Svo segir yfirmaður breska hnefaleikasambandsins.

Haye hefur lýst því yfir í áraraðir að hann ætlaði sér að hætta er hann verður 31 árs. Sá dagur er á fimmtudaginn. Margir áttu samt von á að hann myndi hætta við þá ákvörðun en nú er hermt að hann muni standa við stóru orðin.

Hinn kjaftfori Haye hefur átt farsælan feril en tapaði fyrir Wladimir Klitschko í sumar. Fastlega var búist við því að hann myndi í kjölfarið slást við bróðir hans, Vitali, en af þeim bardaga verður væntanlega ekki.



Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×