Bono hagnast um tugi milljarða á Facebook 17. janúar 2011 09:36
Ef nýlega kaup Goldman Sachs og Digital Sky Technologies (DST) á hlut í samskiptavefnum Facebook gefa rétta mynd af markaðsvirði vefsins er ljóst að Bono, hinn litríki söngvari írsku hljómsveitarinnar U2, hefur hagnast um tugi milljarða kr. Fjallað er um málið á vefsíðunni e24.no. Þar segir að Bono hafi fjárfest fyrir 210 milljónir dollara í Facebook árið 2009 í gegnum fjárfestingarfélagið Elevation Partners. Þar með eignaðist Bono 1,5% hlut í Facebook sem í dag er mögulega 540 milljóna dollara virði miðað við fyrrgreindar forsendur. Bono hefur því hagnast um 330 milljónir dollara frá 2009 á Facebook eign sinni eða tæplega 40 milljarða kr. Fram kemur á e24.no að gera verði þann fyrirvara við þessa útreikninga að hlutafé í Facebook kann að hafa þynnst út við kaup Goldman Sachs og DST. Þannig segir Colin Gillis, greinandi hjá BGC Partners í New York, í samtali við blaðið Guardian að til að meta gengishagnað Bono þurfi að liggja fyrir hve margir hlutir voru skráðir í Facebook þegar hann keypti og hve margir hlutirnir séu í dag eftir kaup Goldman Sachs og DST fyrir nokkru síðan.
Mest lesið Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira