Lífið

Fjörug frumsýningarhelgi

Bieber og hryllingur Justin Bieber syngur sig inn í hug og hjörtu kvikmyndahúsagesta á meðan Anthony Hopkins reynir að hræða líftóruna úr eldra fólkinu í The Rite.
Bieber og hryllingur Justin Bieber syngur sig inn í hug og hjörtu kvikmyndahúsagesta á meðan Anthony Hopkins reynir að hræða líftóruna úr eldra fólkinu í The Rite.
asdfasdfasdf
Íslenskir kvikmyndahúsagestir þurfa ekki að kvarta undan skorti á fjölbreytileika í íslenskum kvikmyndahúsum. Háskólabíó sýnir gamlar og góðar á mánudögum, í Bíó Paradís er hægt að sjá klassíkina á hvíta tjaldinu og stóru kvikmyndahúsin frumsýna fjórar en ákaflega ólíkar kvikmyndir um helgina.

Fyrst ber að nefna kvikmyndina Never Say Never sem fjallar um popptröllið Justin Bieber, þennan sextán ára strák frá Kanada sem trúir á Guð, er á móti fóstureyðingum og hefur sigrað heiminn.

Á meðan ungviðið dillar sér í takt við sykraða tóna Biebers hræðir Anthony Hopkins líftóruna úr eldra liðinu í kvikmyndinni The Rite. Breski Óskarsverðlaunahafinn með bandaríska ríkisborgararéttinn fær í myndinni að kljást við kunnuglegt stef úr hryllingsmyndum, nefnilega djöfulinn og andsetið fólk. Yngsta kynslóðin hefur það síðan bara huggulegt í einum af hliðarsölunum og nýtur þess að horfa á Space Chimps 2 eða Geimapa. Myndinni er leikstýrt af John H. Williams sem framleiddi allar Shrek-myndirnar.

Deitmynd helgarinnar er loks How Do You Know eftir meistara James L. Brooks þar sem stórstjörnurnar Reese Witherspoon, Owen Wilson og Jack Nicholson fara með helstu hlutverkin. Þótt sorglegt sé fær myndin samt einungis 5,3 á imdb.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.