Lífið

Ragnhildur Steinunn förðuð fyrir jólin

elly@365.is skrifar
Eins og sjá má á myndunum var góð stemning í snyrtivöruversluninni Make Up Store þegar nýja Pure litalínan var kynnt. Eigandi Make Up Store, Margrét R. Jónasardóttir, farðaði fjölmiðlakonuna Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur með nýju litunum.

Kvöldið var líflegt og skemmtilegt þar sem gestir fylgdust með á meðan Ragnhildur Steinunn var förðuð með nýju litunum. Margrét sýndi nýjustu straumana í förðun fyrir hátíðarnar og veitti gestum góð ráð.

Pure línan frá Make Up Store er klassísk og fáguð. Hún inniheldur náttúrulega liti sem henta öllum. Í línunni eru þrír augnskuggar, tveir kinnalitir, tveir varablýantar, varalitur og gloss.

Make up store á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×