Lífið

Ungmenni á plötu Sönglistar

Efnileg ungmenni úr Sönglist flytja þrettán lög á nýju plötunni, eða þau Bjarki, Metta, Edda Margrét, Rakel og Ólöf.
Efnileg ungmenni úr Sönglist flytja þrettán lög á nýju plötunni, eða þau Bjarki, Metta, Edda Margrét, Rakel og Ólöf.
Ungmenni á aldrinum fimmtán til sautján ára koma við sögu á plötunni Sönglistin 2010 sem er nýkomin út. Á henni eru þrettán innlend og erlend lög. Flytjendur eru eða hafa verið nemendur í söng- og leiklistarskólanum Sönglist.

Þetta er fyrsta platan sem Sönglist gefur út en skólinn var settur á laggirnar 1998. „Löngunin til að gefa út disk hefur verið á dagskránni í töluverðan tíma og við létum verða af því að gera þetta núna," segir Erla Ruth Harðardóttir, sem er eigandi Sönglistar ásamt Ragnheiði Hall. „Við erum alsælar með þetta," bætir hún við.

Platan átti uppaflega að koma út fyrir jól en lenti, eins og margar aðrar, í hremmingum í Bretlandi vegna óveðursins sem þar geisaði. Lögin eru sungin af Bjarka Lárussyni, sem er þekktur fyrir lagið Bara þú, Eddu Margréti Erlendsdóttur, Elísabetu Mettu Ásgeirsdóttur, Rakel Björk Björnsdóttur, Ólöfu Kristínu Þorsteinsdóttur, sem vann Samfés 2009, og Stúlknasveitinni Kára?

Útgáfufögnuður vegna plötunnar var haldinn í Iðnó fyrir skömmu og gekk hann vonum framar. Erla er þess fullviss að fleiri Sönglistar-plötur komi út á næstu árum. „Það kemur örugglega aftur diskur. Við komumst þangað sem við ætlum okkur, á okkar hraða." - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×