Jóel litli kominn með vegabréf Ingimar Karl Helgason skrifar 27. janúar 2011 18:41
Íslensk stjórnvöld hafa gefið út vegabréf fyrir Jóel Færseth Einarsson, sem hefur verið fastur á Indlandi ásamt foreldrum sínum frá því fyrir jól. Viðbúið er að þau komist heim til Íslands á næstu dögum. Helga Sveinsdóttir og Einar Færseth, eignuðust Jóel litla úti á Indlandi. Þarlend kona gekk með hann fyrir greiðslu og var hann tekinn með keisaraskurði 13. nóvember. Alþingi veitti honum íslenskan ríkisborgararétt fyrir jólin. Hins vegar hafa Helga og Einar hafa ekki komst með hann heim, þar sem dregist hefur að gefa út fyrir hann vegabréf, þar sem óvíst hefur verið hver fari með forræði Jóels litla, að lögum. Nú hafa íslensk stjórnvöld, eftir því sem fréttastofa kemst næst, gefið út vegabréf fyrir drenginn. Sendiráðunautur frá íslenska sendiráðinu í Nýju Delí - hélt af stað í dag til Shennaí, þar sem Helga og Einar hafa dvalist undanfarnar vikur, í því skyni að afhenda þeim vegabréfið. Það er hins vegar dálítill spölur þarna á milli og þegar fréttastofa náði tali af Einari Færseth fyrr í dag, höfðu þau Helga ekki fengið vegabréf Jóels í hendur. Eftir því sem fréttastofa kemst næst - en ekki fengið staðfest - hafa indversk stjórnvöld samt ekki gefið ákveðin svör um forræðið. Viðbúið er að Jóel og foreldrar hans geti komið heim fljótlega - en það eina sem gæti tafið málið úr þessu - eftir því sem fréttastofu er sagt - væri ef indversk stjórnvöld veittu ekki brottfararleyfi.
Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Tvær á toppnum Innlent Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Erlent Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Innlent Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Innlent Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Innlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Erlent Fleiri fréttir Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Sjá meira