Innlent

Stjórnarformaður Úlfsins: Kemur á óvart að vera tengdir við samráðið

Húsleitir og handtökur Úlfurinn hefur veitt stóru fyrirtækjunum Byko og Húsasmiðjunni samkeppni í sölu grófra vara á borð við gips og steypustyrktarjárn. Nú hefur Samkeppniseftirlitið kært meint ólöglegt samráð fyrirtækjanna. Fréttablaðið/Pjetur
Húsleitir og handtökur Úlfurinn hefur veitt stóru fyrirtækjunum Byko og Húsasmiðjunni samkeppni í sölu grófra vara á borð við gips og steypustyrktarjárn. Nú hefur Samkeppniseftirlitið kært meint ólöglegt samráð fyrirtækjanna. Fréttablaðið/Pjetur
Nítján starfsmenn Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins byggingarvara voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í gær vegna rannsóknar á meintu broti mannanna á ákvæðum laga um bann við samráði um verð, gerð tilboða og skiptingu markaða.

Starfsmennirnir voru handteknir þegar efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá fyrirtækjunum þremur. Mönnum var öllum sleppt eftir yfirheyrslurnar. Allt að sex ára fangelsi liggur við meintum brotum þeirra.

„Rannsókn ríkislögreglustjóra beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsókn lögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar,“ segir í tilkynningu samkeppniseftirlitsins. „Samhliða rannsókn lögreglu á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni við ólögmætu samráði, en slík brot varða fyrirtæki meðal annars stjórnvaldssektum.“

Við aðgerðina naut ríkislögreglustjóri og Samkeppniseftirlitið aðstoðar starfsmanna sérstaks saksóknara, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum. Lagt var hald á gögn og muni. Rannsóknin mun beinast að markaði með grófvörur á byggingarmarkaðinum.

Byko og Húsasmiðjan sendu frá sér yfirlýsingar vegna málsins. „Af þessu tilefni vill Húsasmiðjan taka fram að hún vísar öllum ásökunum um verðsamráð á bug. Fyrirtækið mun að sjálfsögðu aðstoða við rannsókn málsins enda hefur það ekkert að fela,“ segir í yfirlýsingu frá Sigurði Arnari Sigurðssyni, forstjóra Húsasmiðjunnar.

Byko kveðst ávallt hafa lagt sig fram um að tryggja að starfsemi þess og viðbrögð á markaði væru í samræmi við samkeppnislög. „Fyrirtækið hefur unnið með rannsóknaraðilum og afhent þau gögn sem óskað hefur verið eftir. BYKO gerir ekki athugasemdir við að rannsóknaraðilar ræki skyldur sínar með þessum hætti,“ segir í yfirlýsingu frá Iðunni Jónsdóttur, stjórnarformanni Byko.

„Það kemur okkur mjög á óvart að vera tengdir við þessa rannsókn. Við höfum ekki tekið þátt í neinu samráði og ég býst við að við verðum fljótlega úr sögunni í þessu máli,“ segir Guðmundur Þór Jóhannsson, stjórnarformaður Úlfsins.

Fyrirtækið tók til starfa á árinu 2007 og sérhæfði sig í sölu grófra byggingarvara á borð við gips, krossvið. þakpappa, steypustyrktarjárn og plasteinangrun. Aðeins einn starfsmaður er nú hjá Úlfinum, sem að sögn Guðmundar er að leggja af áðurnefnda starfsemi. gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×