Lífið

Harry verður svaramaður Vilhjálms

Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið litla bróður sinn Harry um að verða svaramaður í hinu konunglega brúðkaupi sem stendur fyrir dyrum þegar hann kvænist Kate Middleton.

Hin verðandi drottning hefur leikið sama leikinn og bað hún systur sína Pippu um að verða brúðarmær. Þetta var tilkynnt í gær, á Valentínusardaginn en brúðkaupið fer fram 29 apríl næstkomandi. Vilhjálmur fetar þarna í fótspor föður síns sem fékk litla bróður sinn, Andrew, til þess að vera svaramaður þegar Karl giftist Díönu prinsessu árið 1981.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×